Reykjavíkurmaraþonið 2021

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hefur verið frestað til laugardagsins 16. september 2021 og skráning er í fullum gangi. Allir þátttakendur geta hlaupið til góðs og safnað áheitum fyrir Parkinsonsamtökin, óháð vegalengd. Áheitasöfnunin í Reykjavíkurmaraþoninu hefur verið gríðarlega mikilvæg fjáröflun fyrir Parkinsonsamtökin undanfarin ár og við erum þakklát öllum þeim sem hlaupa fyrir samtökin og þeim sem styrkja samtökin með áheitum.

Ætlar þú að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu og þekkirðu einhvern sem tekur þátt og getur hlaupið til góðs fyrir Parkinsonsamtökin? Láttu það berast því saman erum við sterkari og margt smátt gerir eitt stórt.