Parkinson samtökin á Íslandi :: Ársskýrsla PSÍ 2008 08.mars
Ársskýrsla PSÍ 2008 08.mars   Prenta 
Parkinsonssamtökin á Íslandi

Ársskýrsla stjórnar PSÍ

lögð fram á aðalfundi samtakanna fyrir árið 2007, haldinn 8. mars 2008

Stjórn og stjórnarstörf

Aðalfundur ársins 2006

Á aðalfundi samtakanna hinn 24. mars 2007 voru eftirtalin kosin í stjórn
samtakanna:

Formaður: Ásbjörn Einarsson, til eins árs.

Aðalstjórn: Guðfinna Sveinsdóttir, Ólína Sveinsdóttir og Siglinde
Sigurbjarnarson, allar til tveggja ára.

(Áfram sátu í stjórn til eins árs: Hafsteinn Jóhannesson, Sigrún Hauksdóttir og
Tryggvi Sigurbjarnarson)

Varamenn: Karl M. Karlsson og Skúli Pálsson.

Skoðunarmenn
ársreikniga: Hjörleifur Jóhanneson og Ragnar Hólmarsson.

Laganefnd: Ólína Sveinsdóttir, Þorvaldur Þorvaldsson og Jón Jóhannsson.
Á fyrsta stjórnarfundi skipti aðalstjórn með sér verkum sem hér segir:
    Varaformaður: Hafsteinn
    Gjaldkeri: Ólína
    Ritari: Tryggvi
    Meðstjórnendur: Guðfinna, Siglinde og Sigrún

Á stjórnartímabilinu frá 24. mars 2007 til 8. mars 2008 voru haldnir 13 bókaðir
fundir. Venjulegur fundartími var fyrsta og þriðja þriðjudag í mánuði kl. 17:00 –
19:00, en fundahlé var að venju yfir sumarmánuðina júlí og ágúst.

Skrifstofan og almenn starfsemi

Félagar í Parkinsonssamtökunum eru um 450 talsins. Þar af eru um 250
parkinsonssjúklingar, sem er um helmingur parkinsonssjúkra á Íslandi

Skrifstofa samtakanna er í húsnæði Þjónustuseturs Líknarfélaga á 9du hæð í húsi
ÖBÍ við Hátún 10B. Samtökin eru þar í góðu sambýli við nokkur önnur
sjúklingafélög.

Starfsmaður er Fríða Bragadóttir í 40% starfi. Fríða hefur haft fasta viðveru á
skrifstofunni mánudaga til fimmtudaga kl. 12-15 og til viðbótar sinnt þeim
verkefnum sem brýn hafa verið hverju sinni.

Sl. haust var Jónína Björg Guðmundsdóttir ráðin í hálft starf til að sinna
sérstaklega jafningjastuðningi og útgáfumálum. Hún útbjó m.a. spurningalista
vegna viðtala við parkinsonssjúklinga í Samtökunum og undirbjó skipulegar
símhringingar til þeirra. Seint á árinu 2007 veiktist hún og fór í veikindaleyfi. Í
stað hennar hefur Hrönn Ágústsdóttir, grunnskólakennari og námsráðgjafi, verið
ráðin í hálft starf til þess að vinna að jafningjastuðningnum. Einnig hefur Hörður
Bergmann, kennari og rithöfundur, tekið að sér það verkefni að sjá um útgáfu
fræðslubæklinga samtakanna.

Parkinsonsfélag Akureyrar og nágrennis

Parkinsonsfélag Akureyrar og nágrennis, PAN, átti 20 ára afmæli á árinu 2007 og
af því tilefni er nýútkomið Rit samtakanna að miklu leyti helgað starfinu þar.

Þau Elín G. Ólafsdóttir og Guðmundur Guðmundsson fóru í heimsókn norður sl.
haust til þess að hitta þar fólk og safna efni í Ritið. Einnig var aflað styrkja til
útgáfunnar í samvinnu við norðanmenn.

PAN starfar nú sem sérstök deild innan PSÍ og hefur sú tilhögun gengið
ágætlega. Mjög nauðsynlegt er, að viðhalda þeim tengslum sem best og efla
samstarfið sem kostur er.

Trúnaðarlæknir

Trúnaðarlæknir samtakanna er dr. Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, taugalæknir, eins
og verið hefur. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess fyrir samtökin að hafa
aðgang að þeirri ráðgjöf og fróðleik, sem hún hefur miðlað samtökunum gegnum
tíðina.

Fundir og félagsstörf

Stjórnarfundir

Störf stjórnar hafa verið með hefðbundnum hætti og eins og að framan greinir
voru haldnir 13 bókaðir stjórnarfundir á tímabilinu, en milli funda hafa
stjórnarmenn hist með ýmsum hætti til mismunandi verka.
Fastir liðir á dagskrá stjórnarinnar á starfsárinu hafa verið jafningjastuðningur og
útgáfumál, en þetta hvort tveggja hefur verið uppistaðan í félagsstarfinu á árinu.

Laugardagsfundir

Hinir hefðbundnu laugardagsfundir hafa sem fyrr verið mikilvægur þáttur í
starfsemi samtakanna. Á starfsárinu hafa þær Guðfinna og Siglinde staðið fyrir
þeim.

Fundirnir hafa verið haldnir á skrifstofu samtakanna, en með haustinu varð mikil
aukning í þátttöku á þessum fundum og þeir búnir að sprengja utan af sér
húsnæðið. Var þá leitað til Grand Hótel með aðstöðu og hafa fundir ársins 2008
verið haldnir þar.

Að venju hafa þeir verið haldnir fyrsta laugardag í hverjum mánuði, nema yfir
sumartímann og í desember, en þá hefur hefðbundinn jólafundur komið í stað
mánaðarlegs laugardagsfundar. Samtals voru haldnir 9 laugardagsfundir á árinu.

Ýmsar hugmyndir eru uppi um að auka tíðni og fjölbreytni þessara funda í
framtíðinni.

Fræðslufundir

Alls voru haldnir fjórir fræðslufundir á starfsárinu:

1. Þann 14. apríl 2007 var haldinn fræðslufundur á Grand Hótel um
munnholsrannsóknir. Dr. Peter Holbrook, prófessor við tannlæknadeild HÍ, hélt
fróðlegt erindi um rannsóknarverkefni, sem varðar tann- og munnheilsumál
parkinsonssjúklinga. Verkefnið var framkvæmt undir hans stjórn við deildina í
samvinnu við PSÍ. Fundurinn var fjölsóttur, um 40 manns mættu og urðu
fjörlegar umræður að erindinu loknu.

Um þessa rannsókn er ítarlega fjallað í Ritinu, sem gefið var út vorið 2007 (1.
tbl., 21. árg.)

Í framhaldi af þesari rannsókn hafa farið fram viðræður við Tryggingastofnun
ríksins og Reyni Jónsson, tryggingayfirtannlækni, um sérstöðu
parkinsonssjúklinga í þessum málum. TR hefur verið sent erindi um málið og þar
farið fram á, að við fáum a.m.k. sömu tilslakanir og fólk með Sjögrens-heilkenni
hefur fengið. Málið er í vinnslu hjá TR.

2. Hinn 3. nóvember 2007 var haldinn annar fræðslufundur á Grand Hótel, í
þetta skipti um tengsl parkinsonssjúkdóms og þunglyndis, sem Halldór
Kolbeinsson, yfirlæknir endurhæfingardeilda geðsviðs LSH, fjallaði um. Fundur
þessi var mjög vel sóttur, yfir 60 manns mættu og urðu miklar umræður, margar
fyrirspurnir og almenn ánægja með fundinn. Útdráttur úr erindi Halldórs birtist
einnig í Ritinu sl. vor. Stefnt er að því að halda fund um þetta efni á Akureyri
síðar á þessu ári.

3. Hinn 4. september 2007 var síðan haldin kynning fyrir parkinsonssjúklinga á
Feldenkrais-aðferðinni svokölluðu, en það er aðferð til að stjórna hreyfingum
líkamans meðvitað. Leiðbeinandi var Sibyl Urbancic. Kynningin fór fram á
Reykjalundi og sóttu hana um 20 félagsmenn. Í ráði er að stofna til sérstaks
námskeiðs um þetta efni.

4. Þann 1. mars hélt Dr. Sigrún Gunnarsdóttir fyrirlestur, sem nefndist “Að njóta
lífsgæða í daglega lífinu”. Fyrirlesturinn lýsti hugmyndum og leiðum til að auka
lífsgæði þrátt fyrir hindranir vegna sjúkdóma. Um 70 manns mættu á fundinn og
urðu fjörugar umræður að erindinu loknu. Fyrirlesturinn var haldinn í tengslum
við laugardagsfundinn þann dag og markaði upphaf námskeiðs eða hópastarfs í
sjálfsstyrkingu, sem fram fer á vegum jafningjastuðningsins. Næstum 30 manns
skráðu sig svo í hópastarfið.

Sumarferð

Hefðbundna sumarferð átti að fara sunnudaginn 25. júní og skyldi haldið á
Reykjanes. Ekki varð þátttaka sem skyldi, væntanlega vegna þess að sunnudagur
er ekki eins heppilegur og laugardagur í þessu skyni, og var ferðinni frestað til
haustsins.

Sumarferðin varð því haustferð, sem farin var hinn 22. september í heldur
rysjóttu veðri. Þátttaka varð samt allgóð, um 40 manns mættu til leiks. Farið var
um Reykjanes. Komið var fyrst við í Saltfisksetrinu í Grindavík, síðan ekið um
nesið og litast um, stansað við “brúna milli tveggja heimsálfa”, en síðan komið
við í Fræðasetrinu í Sandgerði þar sem hópurinn fékk ágæta leiðsögn
forstöðumannsins og varð vitni að fóðrun merkilegra sjávardýra. Að lokum var
ekið beinleiðis til Keflavíkur þar sem snæddur var léttur kvöldverður og síðan
haldið heim.

Jólafundur

Hefðbundinn jólafundur var haldinn í Kivanishúsinu laugardaginn 1. desember.
Metþátttaka varð á fundinum eða um 120 manns. Borið var fram jólahangikjöt
ásamt meðlæti. Ingibjörg Pétursdóttir fór með gamanmál af venjubundinni snilld,
sr. Úlfar Guðmundsson flutti hugvekju og Þór Vigfússon sagði frá. Einnig var
söngskemmtun og fleira sér til gamans gert.

Fundur fyrir maka Parkinsonssjúklinga

Að forgöngu Hafsteins hafa makar parkinsonssjúklinga á Selfossi og nágrenni
komið saman nokkrum sinnum á starfsárinu. Þetta starf er enn í mótun, en hefur
tekist vel og getur orðið fyrirmynd að samskonar fundum annars staðar.
Fyrirhugaður er fræðslufundur með Halldóri Kolbeinssyni geðlækni á Selfossi í
tengslum við þessa fundi.

Samstarf við systurfélög og stofnanir

Samtaug - Samtök félaga taugasjúklinga

Samtaug er samstarfsvettvangur sex félaga taugasjúklinga, þ.e. MND-sjúklinga,
Heilaheilla- félags fólks, sem fengið hefur heilablóðfall, MG- félags Íslands, LAUFlandssamtaka
áhugafólks um flogaveiki, Parkinsonssamtakanna á Íslandi og MSfélags
Íslands. Fulltrúar Samtaugar héldu fund með forstjóra LSH og
samstarfsmönnum hans þann 14. september sl. vegna vandamála við mönnun á
B-2, taugadeild LSH, einkum hvað varðar fækkun hjúkrunarfræðinga, sem vilja
starfa við deildina. Þar var farið yfir stöðu mála og í kjölfarið fóru fulltrúar
Samtaugar á fund heilbrigðisráðherra og ræddu málið við ráðuneytisfólk. Málið
leystist til bráðabirgða. Hafsteinn er fulltrúi PSÍ í Samtaug.

PSÍ tók ásamt tveimur öðrum Samtaugarfélögum þátt í að styrkja starfsfólk á B-2
til fræðsluferðar til þess að skoða starfsemi hátæknitaugadeilda á Norðurlöndum.
Gjöfin var veitt í tilefni af 40 ára afmæli taugadeildar og með hliðsjón af þeim
mönnunarvandamálum, sem áður voru nefnd. Einnig tók PSÍ, ásamt MND, þátt í
gjöf til taugadeildar í tilefni afmælisins.

Öryrkjabandalag Íslands

Samtökin eiga fulltrúa í aðalstjórn ÖBÍ og var Ásbjörn formaður PSÍ kjörinn til
þess á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar. Þar hafa mestar umræður verið um nýtt
örorkumat og er því máli ekki lokið. Ragnar Gunnar Þórhallson, fulltrúi ÖBÍ í
örorkumatsnefnd forsætisráðherra kom á fund stjórnar PSÍ og ræddi það mál.
Einnig kom Sigursteinn Másson, þáverandi form. ÖBÍ á fund stjórnar PSÍ og
ræddi starfsemina. Á þessu ári urðu miklar deilur um stjórn Brynju, hússjóðs ÖBÍ,
sem lauk með því að Sigursteinn sagði af sér formennsku í ÖBÍ. Var Halldór
Sævar Guðbergsson kosinn nýr formaður í febrúar 2008.

Taugadeild Landspítala – Háskólasjúkrahúss

Með tilkomu nýs lyfs fyrir MS-sjúklinga hefur álag á B-2, taugadeild LSH, aukist til
muna. Er nú svo komið, að deildin er nánast lokuð parkinsonssjúklingum. Verða
þeir að leggjast inn á aðrar deildir, þar sem þekking á umönnum þeirra er mun
minni. PSÍ barst nýlega skýrsla frá Landlækni, þar sem fram kemur harðorð
gagnrýni á umönnun parkinsonssjúklings, sem fór í hnjáskiptaaðgerð á LSH. Var í
raun lítið sem ekkert tillit tekið til parkinsonsveikinnar í umönnuninni.
Sjúklingurinn lést nokkum dögum eftir aðgerðina. Samkvæmt viðtölum stjórnar
við trúnaðarlækni PSÍ og fleiri sérfræðinga, má búast við að þetta ástand fari
versnandi á LSH og það verður verkefni næstu stjórnar að taka á því máli.

Parkinsonsteymi, sem búið var að setja upp á B-2, er ekki lengur starfandi. Eins
hafa möguleikar til lyfjastillingar og annarrar sérhæfðar þjónustu minnkað
verulega eða horfið.

Reykjalundur

Stofnað hefur verið til formlegrar samvinnu PSÍ við teymið á Reykjalundi, sem
sér um parkinsonssjúklinga og var fyrsti fundur um þau mál haldinn hinn 21. maí
2007. Síðan hefur verið fundað reglulega um samstarfið.

Á Reykjalundi eru haldin námskeið í heilsueflingu fyrir parkinsonssjúklinga fjórar
vikur í senn. Til þess að komast á þessi námskeið þarf tilvísun læknis og er
reiknað með að hver sjúklingur geti a.m.k. einu sinni komið á slíkt námskeið.
Fólk, sem verið hefur á námskeiði, getur fengið þjónustu á göngudeild. Fulltrúar
PSÍ heimsækja nú alla námskeiðshópana og kynna samtökin. Hefur það reynst
vel og aflað samtökunum nýrra virkra félaga.

Einnig er haldið eitt dagsnámskeið fyrir nýgreinda á hverju ári.

Þetta dagsnámskeið er auglýst hverju sinni á heimasíðu Parkinsonssamtakanna.

Á Reykjalundi er unnið að tveim rannsóknarverkefnum í tengslum við
parkinsonsveiki, annarsvegar verkefni um lífsgæðalista með spurningum um líf
og heilsu sjúklinga og hinsvegar um göngufærni með sjónrænni hjálp í því skyni
að bæta göngufærni. Um bæði þessi verkefni hefur verið margvísleg samvinna
við PSÍ og munu samtökin aðstoða við framkvæmd þeirra á ýmsan máta. Stjórn
PSÍ hefur m.a. ákveðið að sjá um kaup á tækjum, sem Reykjalundur þarfnast til
þessara verkefna, að upphæð um kr. 2.500.000. Verður gjöfin afhent formlega á
Alþjóðlega Parkinsonsdeginum þann 11. apríl nk.

Teymið á Reykjalundi hefur gert drög að bæklingi sem nefnist “Parkinsonsveiki –
einkenni og úrræði”. Ákveðið hefur verið að samtökin standi fyrir útgáfu þessa
bæklings og er undirbúningur að því þegar hafinn.

Erlent samstarf

NPR, Parkinsonssamtök á Norðurlöndunum

Fríða Bragadóttir, starfsmaður samtakanna, fór sem fulltrúi samtakanna á
aðalfund norrænu Parkinsonssamtakanna NPR 11.-13. maí 2007. Kom þar helst
fram að heilbrigðiskerfi allra Norðurlandanna virðast glíma við sömu
grunnvandamálin; ónóg fjárframlög, viðvarandi manneklu, skort á úrræðum til
þjálfunar og endurhæfingar og skilnings- og aðgerðaleysi stjórnvalda. Bæði í
Svíþjóð og Finnlandi horfir til stórvandræða ef ekki verður breyting á.
Undantekningin er Færeyjar en þar virðast sjúklingar með taugasjúkdóma fá
afbragðs góða þjónustu og fyrirgreiðslu.

Rætt var um hvort og þá hvernig ætti að efla samstarf félaganna í löndunum
sex. Allir voru sammála um að við gætum hjálpast meira að og í þeim tilgangi var
settur á stofn vinnuhópur með einum fulltrúa frá hverju landi. Sá hópur fundaði
svo í Kaupmannahöfn í sept sl. og fór Fríða einnig á þann fund fyrir okkar hönd.
Ákveðið var að starfsfólk skrifstofanna reyndi að koma á virkara samstarfi sín á
milli, enda allar skrifstofurnar litlar og gott fyrir fólk að hafa aðra að ræða við
sem eru að vinna að sömu málum. Þetta samstarf mun svo vonandi þróast á
næstu árum.

EPDA, Evrópusamstarf Parkinsonssamtaka.

Ingibjörg Stefánsdóttir, félagsmaður samtakanna til margra ára, fór sem fulltrúi
okkar á aðalfund EPDA, sem haldinn var í Stresa á Ítalíu í október. Nýr formaður
var kjörinn, Stephen Pickhard frá Belgíu. Lítið annað var nýtt en flutt erindi um
ýmislegt, svo sem sjúkraþjálfun, endurhæfingu, mataræði o.fl. Segir Ingibjörg
nánar frá þessu í nýútkomnu Riti samtakanna.

Sérstök verkefni

Jafningjastuðningur

Jafningjastuðningurinn og verkefni tengd honum eiga að vera áhersluverkefni
Samtakanna. Jafningjastuðningurinn hefur að undanförnu einkum falist í:

- Að halda laugardagsfundi, þar sem sjúklingar og aðstandendur hittast og ræða
saman.

- Að hafa sérstakan símatíma (2x í viku) fyrir fólk sem sækist eftir aðstoð, og
síðan að veita þá aðstoð eftir því sem hægt hefur verið.

- Að halda námskeið í Feldenkrais tækni á Reykjalundi.

Þær Helga Hróbjartsdóttir, Guðfinna Sveinsdóttir, Siglinde Sigurbjarnarson og
Benney Ólafsdóttir hafa staðið fyrir þessu starfi.

Einnig hafa að undanförnu verið haldnir á Selfossi stuðningsfundir fyrir maka
parkinssonssjúkra.

Nú hefur Hrönn Ágústsdóttir verið ráðin í 50% starf við að auka og þróa
jafningjastuðninginn. Einnig var settur upp stýrihópur stjórnar, sem í eiga sæti
Hafsteinn, Guðfinna og Siglinde, til þess að stýra þessum málaflokki fram að
aðalfundi.

Segja má, að verkefni fyrir Jafningjastuðninginn séu óþrjótandi og sífellt að koma
fram nýjar hugmyndir og tillögur. Eftirfarandi ný verkefni eru í undirbúningi:

- Að undirbúa og halda námskeið í sjálfseflingu, sem Dr. Sigrún Gunnarsdóttir,
hjúkrunarfræðingur er ráðgjafi um. Námskeið þetta hófst með fyrirlestri Sigrúnar,
eins og áður er nefnt. Helga Hróbjartsdóttir hefur verið í forustu með
undirbúninginn. Hópastarfið hófst nú í byrjun mars og í upphafi taka þátt í því
um 30 félagsmenn.

- Að ná sambandi við parkinsonssjúklinga, sem hafa einangrast félagslega og
þurfa á einhvers konar aðstoð eða uppörvun að halda. Fyrsta skrefið í þessa átt
var að gera lista yfir félagsmenn til þess að hringja í og mun Hrönn ræða við þá
um stöðu þeirra og þarfir eða jafnvel heimsækja þá.

- Að bæta við núverandi símatíma fyrir fólk, sem sækist eftir aðstoð eða
uppörvun, og fylgja eftir þeim erindum sem þannig berast. Hrönn hefur nú tekið
við síma Jafningjastuðningsins og mun svara í hann þriðjudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga kl.13-16. Mun hún veita ráðgjöf varðandi félagslega aðstoð,
tryggingamál, starfslok, félagslega einangrun og raunar spjalla við fólk um
hvaðeina sem því liggur á hjarta.

- Að efla laugardagsfundina. Fram til þessa hafa þessir fundir fyrst og fremst
verið óformlegir samræðufundir, en hugmyndir eru uppi um að bæta einhvers
konar fræðslu fagmanna við og gera þá að einhverju leyti formlegri án þess þó
að missa af upphaflegum tilgangi.

- Að mynda hóp parkinsonssjúkra og fagfólks til að heimsækja sjúkrastofnanir,
elliheimili, og önnur meðferðarheimili til þess að fræða starfsfólk um sjúkdóminn
og þarfir parkinsonssjúklinga. Gerðar hafa verið tilraunir með þetta, sem hafa
þótt takast vel, en þetta starf þarf að efla. Þörfin er brýn og er undirbúningur
hafinn að því að útbúa fræðsluefni fyrir starfsfólk þessara stofnana.

- Að mynda æfingahópa (stafganga, jóga, sund, golf o.fl.) og veita upplýsingar
og fyrirgreiðslu um hentuga líkamsrækt og sjúkraþjálfun. Hrönn hefur þegar
komið fyrsta gönguhópnum af stað. Gert er ráð fyrir, að hún skoði alla
hugsanlega endurhæfingarmöguleika á næstunni, þannig að hægt sé að efla
þessa mjög svo mikilvægu starfsemi.

- Að koma á stuðningsfundum fyrir maka og aðstandendur.
Eins og sjá má eru verkefnin mörg en grundvöllur jafningastuðningsins er
þáttaka og aðstoð félaganna sjálfra. Okkur vantar alla þá aðstoð, sem félagar í
Parkinsonssamtökunum geta veitt, við að hrinda þessum metnaðarfullu og
mikilvægu verkefnum í framkvæmd.

Útgáfumál

Ritið

Tvö tölublöð af ritinu komu út á starfsárinu, það síðara nú í febrúar. Gefa á út 25
ára afmælisrit samtakanna nú í haust. Eru ritnefndinni, sérstaklega þeim Elínu G.
Ólafsdóttur og Guðmundi Guðmundssyni, þökkuð frábær störf.

Pésinn

Alls voru gefnir út 10 fréttapésar á árinu. Mikilvægi fréttapésanna hefur komið
greinilega í ljós við að auglýsa samkomur og aðra viðburði í starfsemi
samtakanna. Skrifstofan gefur út frétta-pésana.

Heimasíðan

Ingibjörg Stefánsdóttir hefur séð um heimasíðuna ásamt manni sínum Massimo
Scagliotti. Verður framlag þeirra seint fullþakkað. Nú er hins vegar komið að því,
að það þarf að uppfæra heimasíðuna til þess að hún standist þær kröfur, sem nú
eru gerðar til samskipta á netinu. Verður farið í það verkefni á komandi starfsári.

Fræðslubæklingar

Hörður Bergmann hefur tekið að sér að stýra útgáfu fræðslubæklinga
samtakanna. Þrír bæklingar hafa verið í undirbúningi:

- Bæklingur fyrir nýgreinda. Þessi bæklingur er kominn út.

- Bæklingur um parkinsonslyf og mataræði. Verið er að vinna texta þessa
bæklings. Þau Ólöf Guðný Geirsdóttir, matvælafræðingur, og Ríkarður
Róbertsson, lyfjafræðingur, tóku að sér textagerð og hafa þegar skilað
frumtillögum að bæklingnum.

- Bæklingur um parkinsonsveiki, einkenni og úrlausnir. Þessi bæklingur er gefinn
út í samvinnu við Reykjalund. Frumgerð bæklingsins var unnin á Reykjalundi en
Hörður Bergmann sér um ritstjórn og er að búa bæklinginn til prentunar.

Fjármál

Fjármál Parkinsonsamtakanna voru í mjög góðum farvegi árið 2007 og komin
ákveðin festa í fjárhagsstöðu samtakanna.

Nú er lokið samstarfsverkefninu um jafningjastuðning sem var á milli VÍS,
Verkfræðistofunnar Hönnunar og barna Ólafs Sverrissonar annars vegar og
Parkinsonssamtakanna hins vegar en verkefni þetta stóð í 3 ár og heildarstyrkur
var kr. 3.600.000. Þetta samstarf hefur skilað okkur miklu og þökkum við þessum
aðilum kærlega fyrir veittan stuðning.

Sú nýbreytni var tekin upp fyrir 3 árum að reyna að gera langtíma samninga við
styrktaraðila og hefur sú stefna skilað okkur nokkru. Eins hefur verið leitað víða
eftir styrkjum með nokkuð góðum árangri.

Heildartekjur samtakanna á árinu 2007 voru kr 9.521.000 og þar af voru styrkir
til sérstakra verkefna kr. 3.4 milljónir.

Þau verkefni eru: Jafningjastuðningur kr. 1.2 milljónir, útgáfa
Reykjalundarbæklings kr. 1.0 milljón og bæklingur um lyf og fæðuval kr. 1.2
milljónir. Nú er verið að leggja lokahönd á þessi útgáfumál.

Heildarútgjöld árið 2007 voru kr. 4.951.000 og rekstrarkostnaður hefur staðið
nokkuð í stað frá fyrra ári að undanskildum launakostnaði. Við vorum með
starfsmann (40% starf) allt árið og auk þess félagsráðgjafa (50% starf) í 3
mánuði árið 2007. Til samanburðar má geta þess að heildarútgjöld árið 2006
voru kr. 6.702 þúsund en þar var kostnaður vegna norrænnar ráðstefnu kr.
1.317 þúsund og einnig voru gefin út 2 rit fjárhagsárið 2006 en aðeins eitt
fjárhagsárið 2007.

Þegar á heildina er litið þá hefur gengið vel að afla fjár og aðhalds hefur verið
gætt í rekstri.

Síðastliðin 5 – 6 ár hafa verið samtökunum góð og festa komin í fjármálin. Þó
verður að halda vöku sinni því fljótt geta veður skipast í lofti og fjármál snúist til
hins verra fyrirvaralítið.

Við þökkum öllum öllum þeim aðilum, sem styrkt hafa Samtökin.

Gjafir

Það hefur farið í vöxt, að Samtökunum hafa borist góðar gjafir í minningu látinna
parkinssonssjúklinga. Hér verða nefnd tvö dæmi:

- Vigfúsína Danelíusardóttir færði Samtökunum kr. 1.000.000 til minningar
um mann sinn Baldur Karlsson.
10

- Skólasystkini Jóhannesar L. L. Helgasonar færðu samtökunum kr. 100.000
daginn, sem hann hefði orðið 70 ára.
Við þökkum þessar gjafir og aðrar þær sem Samtökunum hafa borist.

Þakkir

Stjórn Parkinsonssamtakanna þakkar öllum félögum samtakanna,
samstarfsaðilum og styrktaraðilum, stórum og smáum, fyrir samstarfið á árinu.

Einnig viljum við þakka stjórnarmönnunum Ólínu Sveinsdóttur, Sigrúnu
Hauksdóttur og Karli M. Karlssyni frábært starf fyrir Parkinsonssamtökin á
undanförnum árum, en þau hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér til stjórnarstarfa
á komandi starfsári.
Loka glugga

« Til baka