Eftir langt og gott sumarfrí erum við að fara af stað með vetrarstarfið. Líkt og áður byggir starfið á samtakamætti félaganna sjálfra. Fyrsta opna húsið - nýliðvakt var miðvikudaginn 25. ágúst og verður alla miðvikudaga í vetur frá 17:00-19:00.
Fyrsti laugardagsfundur vetrarins er á dagskrá 4. september. Laugardagsfundir verða 4. september, 2. október, 6. nóvember en desemberfundurinn verður ákveðinn síðar.
Jafningjastuðningsfundir fara af stað 9. september kl:17:00 og verða aðra hverja viku. Fundirnir eru í Hátúni 10b, kaffistofu á jarðhæð.
Gönguhópur byrjar 16. september kl:17:00 og verður hálfsmánaðarlega á móti jafningjastuðningi. Mæting í Hátún 10b. Allir velkomnir
Ítarlegri dagskrá verður auglýst í fréttapésanum og hér á heimasíðunni eftir 4. september.
Allir þeir sem vilja leggja okkur lið í starfinu eru beðnir að láta okkur vita t.d. á fundum, símleiðis eða í tölvupósti eða skrá sig hér. Okkur vantar aðila til að sjá um , skrif á heimasíðuna, fréttapésann og myndatökur úr félagsstarfinu. Einnig vantar alltaf hug og hönd í félagsstarfið sjálft og eigum við verkefni fyrir alla.